fimmtudagur, ágúst 04, 2005

Jæja nú er ég loksins búin að því. Síðan mín er búin að vera í einhverju rugli núna í 2 mánuði og ég nenni engan veginn að finna út hvernig ég get lagað það. Ég eyddi rosalegum tíma í að búa til þessa síðu til að byrja með og það sem var flókið fyrst var orðið auðvelt. Nú nenni ég ekki að eyða tíma í að gera þetta auðvelt aftur því ég man ekki neitt. Nú ætla ég að hafa þetta auðvelt frá upphafi og þess vegna er ég búin að skipta yfir á blog.central.is - allt er nú heldur betur idiot proof þar. Fínt fyrir mig :) En af því að ég er nú svo óhemju íhaldssöm og hugmyndasnauð þá er nú ekki mikil breyting á slóðinni og ekki heldur síðunni sjálfri. Slóðin er:
http://www.blog.central.is/mrspiggy

sunnudagur, júlí 31, 2005

Það eru bara allir að flytja til Noregs!!! Ingó bróðir, Hulda og Stebbi. Ég get nú ekki sagt annað en að ég sé pínulítið öfundsjúk, ekki það að ég sé svona rosalega hrifin af Noregi, því ég er það ekki, heldur er eina ástæðan fyrir því að mig mundi langa til að búa þar dansinn. Og það er nú bara alls ekki slæm ástæða!! Við Elfar erum meira að segja svo sjúk að við ræddum um það að flytja kannski þangað þegar hann væri komin með starfsreynslu og það að ég sé tilbúin að íhuga það að flytja til annars lands en Íslands eru nú bara stórfréttir. Ég get nú reyndar alveg með hreinskilni sagt að líkurnar fyrir þessu eru nú ekki miklar en þá er nú bara fínt að þekkja svona marga þarna svo maður geti haft afsökun til að fara í heimsókn. Fyrir utan þetta fólk þá kynntumst við líka auðvitað fullt af dönsurum á Ærö, Danni býr þarna og margir svona fjölskylduvinir og þá má ekki gleyma því að pabbi á meira að segja bústað í Bergen. En ég yrði nú örugglega fljót að stinga alla af og fara að dansa

Jæja víst að ég er byrjuð þá ætti ég kannski aðeins að byrja að segja frá Danmerkurferðinni - bara svo ég gleymi henni nú ekki alveg sjálf. Maður rekur nú kannski ekki alveg hvern einasta dag því þeir voru nú oft frekar líkir. Við Elfar flugum út bara tvö, pabbi tók á móti okkur á flugvellinum en hann fór svo bara heim með töskurnar á meðan við fórum niður í bæ og hófum verslunarleiðangurinn gífurlega á strikinu. Við byrjuðum á H og M - tveir tímar - og svo unnum við okkur út frá henni. Svo fórum við heim til pabba en hann býr á sumrin í litlum bústaði í útjaðri Kaupmannahafnar. Þar var hann búinn að búa um okkur og tjalda úti í garði fyrir danskrakkana sem áttu að koma daginn eftir. Daginn eftir byrjuðum við líka á því að versla á strikinu, svo hittum við pabba á Íslandsbryggju og fengum okkur sundsprett í sjónum. Þetta er alveg snilldarsvæði rétt hjá miðbænum og við nutum þess að stökkva af 5 m háum stökkpöllum en við Elfar erum meira fyrir það heldur en að liggja í sólbaði. Eftir eitt stökkið fengum við SMS frá Brynju þar sem hún sagði að þau (hún, Hinrik, Erna og Kjartan) væru í lest á leiðinni niður á aðallestarstöðina en þar ætluðum við að hitta þau. Við sáum fram á að ná því ekki þ.a. við báðum þau bara að hitta okkur á Ráðhústorginu þegar þau væru búin að setja töskurnar sínar í geymslu. Þetta gekk allt upp og auðvitað var farið beint aftur í búðir á strikinu, Kjartani til mikillar gleði - já eða ekki:) Um kvöldið fórum við svo bara til pabba og fólkið kom sér fyrir í tjaldinu. Daginn eftir byrjuðum við á að fara með þau öll á Íslandsbryggju og þau voru alveg jafn hrifin af svæðinu og við, jafnvel þótt stökkpallarnir fóru nú ekki vel í alla. Svo fórum við í Fiskitorvet og eyddum sko okkar allra síðustu kröftum (nema Erna, hún átti nóg eftir) í að versla. Svo keyptum við í matinn og grilluðum öll heima hjá pabba. Svo sátum við í kósý stemmningu úti í garði, Elfar fékk gítar í hönd og við sungum en þetta var nú allt á rólegu nótunum. Daginn eftir þetta fórum við til Ærö. Pabbi ákvað að koma með okkur og gista hjá okkur í þrjár nætur þar og hann ákvað að fara á bíl svo við gátum fyllt hann af dóti og svo fékk ég líka far. Þetta var engin smá lúxus, líka fyrir aðra en mig þ.e. þá sem fóru í lestinni því mesta böggið við það er að burðast með töskurnar fyrst í lestina, svo strætó og að lokum í bátinn en þau sluppu við það. Ferðalagið gekk bara fínt en við vorum aðeins seinni til Ærö en planað var vegna þess að við höfðum rangar upplýsingar um bátinn. Já ég held ég stoppi bara núna og skrifi um Ærö seinna.

föstudagur, júlí 29, 2005

Halló allir :)

Já mín er komin heim, ég kom reyndar heim seint á mánudaginn en ég hef bara ekki nennt að blogga:) Ég hef heldur ekki verið að fara mikið út úr húsi nema til að fara í vinnuna og gera aðrar nauðsynjar en það er allt önnur ástæða fyrir því en leti :/

Látum okkur sjá, hvert var ég nú komin í ferðarsögunni. Já ég var bara búin að tala um fyrsta daginn í Róm. Ég ætla að láta Danmörku bíða í bili og klára frekar Ítalíu. Dagurinn eftir colossium var álíka brjálaður, við vorum mjög virk í Róm. Ég er ekki frá því að þetta hafi bara verið besti dagurinn í ferðinni, allaveganna út frá sight seeing sjónarhorni því við fórum í vatikanið og það er nú bara það flottasta sem ég hef á ævi minni séð. Við vöknuðum snemma og klæddum okkur í sómasamleg föt því stuttar buxur, stutt pils og bera axlir mega ekki sjást inn í vaticaninu. Á leiðinni inn í það rákumst við guide sem var ókeypis þ.a. við fylgdum honum (eða reyndar henni) inn og skoðuðum torgið og Péturskirkjuna með henni. Það var alveg æðislegt, þetta var bæði rosalega flott, bæði byggingarnar sjálfar og túlkunin á þeim. Okkur fannst reyndar dálítið skrítið að þessi túr væri ókeypis því það kostar allt á Ítalíu og það kostar mikið, lang dýrasta land sem ég hef komið til en það er náttúrulega bara út af túristunum. En ástæðan fyrir þessu var að guideinn var bara að kynna sig og skrifstofuna sína. Það virkaði vel því okkur leist svo vel á hana að við ákváðum að fara með henni í safnið líka. Það var alveg tveggja og hálfs tíma túr og það er nú bara lítið því ef við hefðum farið ein þá hefðum við örugglega villst svo oft þarna inni að við hefðum væntanlega aldrei komist út. Þetta var gríðalega flott sérstaklega the sistine chapel, við erum miklir Michelangelo aðdáendur núna. Það var líka svo skemmtileg stemmning þarna eitthvað, fullt af nunnum út um allt - algjörar dúllur. Við Elfar vorum reyndar ekkert alltof vel liðin því við í brúðkaupsferðinni okkar vorum eitthvað að kyssast inn í Péturskirkjunni en það fór víst eitthvað fyrir brjóstið á vörðunum :) Bara fyndið. Svo var okkur sagt að póstkerfið væri miklu skilvirkara þarna í vaticaninu heldur annars staðar í Ítalíu þannig að við ákváðum að senda kortin okkar þaðan. Ég fór þess vegna og keypti frímerki af sætu nunnunum (sko þær seldu þau en á frímerkjunum var Páfinn auðvitað :)) og setti kortin í póstkassann. Allt í góðu með það nema bara póstkassinn var í orðsins fyllstu merkinnu póstkassi, sem sagt bara opinn pappakassi með póstinum í og utan á kassan var einfaldlega skrifað með tússi: "mailbox" :)

Daginn eftir fórum við svo til Flórens. Við vorum búin að sjá allt það sem við vildum sjá í Róm þannig að við fórum bara snemma. Við vorum rosalega löt þegar við komum til Flórens, nenntum ekki að fara að skoða neitt þ.a. við fórum bara í sund en það kostaði by the way 800 kall með sólbekk - dæmi um verð á Ítalíu en þetta var líka bara venjuleg sundlaug, engin fríðindi. Við fórum samt í sund enda höfðum við þörf á smá hvíld. Við fórum svo bara snemma heim á hótel að lesa en við vorum í svona Dan Brown maraþoni í þessari ferð - ég var aðeins og sein að lesa engla og djöfla til að hafa hana í huga þegar ég skoðaði Róm en það var samt alveg gaman að gera það líka eftir á.

Daginn eftir þennan vorum við bara ennþá frekar löt. Við vorum heldur ekki búin að ákveða að gera eitthvað sérstakt í Flórens eins og í Róm, engir staðir sem við vildum sérstaklega skoða. Við röltum því bara um aðaltúristastaðina en þeir eru á svona tiltölulega litlu svæði. Við fórum þó hvergi inn að skoða, nenntum ekki alveg að bíða í tveggja tíma röð til að komast inn á frægasta safnið þ.a. við tókum því bara rólega en þetta er engu að síður mjög fallegur bær.

Daginn eftir fórum við svo í dagsferð til Pisa en tilgangurinn með þessari ferð var bara að skoða skakka turninn. Við vorum þó frekar spennt fyrir því að leigja okkur vespur og fannst því tilvalið að leigja vespur og fara á þeim á ströndina sem var í 12 km fjarlægð frá Pisa. Við áttum ekki pantaðan tíma í skakka turninn fyrr en 20 um kvöldið. Það voru ekki til neinar svona litlar vespur, bara tveggja manna en okkur langaði að fá tvær þ.a. við leigðum bara tvær tveggja manna, gerðum sérstakan díl við kallinn að leigja þær bara í nokkra klukkutíma og fengum þær því á svipuðu verði og þær litlu. Ég fékk alveg glænýja vespu, hún var aðeins og stór fyrir mig þ.a. ég náði ekki almennilega niður og þónokkuð kraftmikið - ÞVÍ MIÐUR!!!! Ég var ansi stressuð til að byrja með, sérstaklega af því að við þurftum að byrja á því að komast út úr bænum og á Ítalíu keyra allir eins og brjálæðingar. Ég reyndi að fá svona smá tilfinningu fyrir vespunni og komst flótt að því að hún var ekki lengi af stað. Ég var svolítið smeyk fyrst en ákvað svo bara að hætta þessu aumingjaskap og tékka hvort ég gæti ekki alveg haldið jafnvæginu og svona. Vespan rauk af stað og þegar ég stefndi út á umferðargötuna reyndi ég að bremsa en einhvernveginn var höndin á mér föst á bensíngjöfinni og það virkar víst ekki að bremsa og gefa í bæði í einu. Ég panikkaði heldur betur og þegar ég stefndi á kyrrstæðan bíl þá man ég að ég hugsaði ég bara um peningana og einhvern veginn lét mig detta. Eftir að ég datt stóð ég strax á fætur, reif hjólið upp alveg miður mín yfir því að nú værum við Elfar sko endanlega farin á hausinn. Ég fann ekki fyrir neinu og það var ekki fyrr en tveimur mínútum síðar eða svo þegar einhverjir Ítalir bentu mér á það að ég hafði heldur betur rústað á mér löppinni og höndinni. Ég hafði brunnið rosalega á malbikinu á tveimur stöðum en annars staðar voru bara grunnar rispur og mar - maður er náttúrulega ekki mikið klæddur heldur. Ég pældi nú ekki mikið í þessu, fór í einhverja búð, keypti svona snýtipappír til að setja á sárin því þeir áttu ekki nógu stóra plástra og svo lögðum við fljótlega af stað á ströndina. Ég var farin að finna fyrir sársaukanum þá en ég ætlaði sko ekki að láta það eyðileggja fyrir mér daginn. Ég get nú ekki sagt að ég hafi rokið af stað, ég keyrði frekar hægt til að byrja með enda skíthrædd og að jafna mig eftir sjokkið. Ég fór þá fyrst að pæla í því hvað ég slapp rosalega vel en ég hugsaði ekkert út í það, annað en Elfar greyið sem var auðvitað skíthræddur um mig. En það rættist heldur betur úr þessu, við vorum bara að væflast um á vespunum nánast allan daginn. Við komum reyndar aðeins við á ströndinni en ég nennti nú ekki að vera lengi þar, var miklu spennari fyrir því að keyra um svæðið. Ég náði reyndar ekki alveg að slappa af því ég var ennþá frekar smeyk um að gaurarnir á leigunni myndu láta okkur borga fullt af peningum í viðgerð á vespunni en það sá nú alveg á henni sko. Við sluppum reyndar mjög vel en við nýttum okkur allt sem við gátum til að lækka verðið - þeir hefðu aldrei átt að láta mig fá svona stórt hjól og að við værum nú í brúðkaupsferð :) og þurftum að lokum ekki að borga nema 80 evrur eða um 6000 kr aukalega fyrir þetta. Þannig að mér fannst þetta eiginlega bara þess virði, reyndar finnst mér það kannski ekki ef ég fer ekki fljótlega að lagast í fætinum en hann er einmitt ástæðan fyrir því að ég er búin að halda mig heima fyrir síðustu daga. Ég var orðin svo bólgin, bæði með bjúg, mar og svo var búið að blæða helling undir húðinni enda var ég nú ekki búin að fara vel með hanaþ.a. eftir að hafa ráðfært mig við hjúkkuna hana systur mína er ég búin að reyna að hvíla löppina og hafa hana upp í loftið. Hún er svona smá saman að lagast og ef hún verður orðin fín eftir eina og hálfa viku þegar það er danskvöld þá get ég ekki kvartað. Það er nú samt alveg merkilegt hvað ég er mikill klaufi - ég hef nokkrum sinnum lent í smá svona óhappi þegar ég er að keyra farartæki og það er alltaf bara út af einhverjum svona klaufaskap - ég er aldrei á neinni ferð. En allaveganna um kvöldið fórum við svo upp skakka turninn og það var upplifun út af fyrir sig, maður var nú bara hálf sjóveikur á leiðinni upp tröppurnar. Svo fórum við bara aftur til Flórens á hótelið.

Daginn eftir þetta fórum við til Feneyja og þar var æðislega gaman og fallegt eins og á alls staðar sem við fórum. Þetta var líka bara dagsferð en við lögðum snemma af stað frá hótelinu Í Flórens, vorum yfir daginn í Feneyjum og fórum svo í lest til Milan um kvöldið þar sem við gistum. Aðalplanið okkar í Feneyjum var að upplifa stemmninguna þar og kíkja á torgið sem ég man nú bara ekki hvað heitir ákkúrat þessa stundina, Markúsartorg? Æji það skiptir ekki máli það skilja mig væntanlega flestir. Þar var aðal stemmningin að ná sér í dúfnafæði sem maður gat keypt þarna á torginu og láta þær borða úr höndunum á sér og jafnvel hárinu. Eins einföld og ég er þá fannst mér þetta náttúrulega rosalega gaman. Annars röltum við bara um svæðið og ég sá um að finna réttu leiðina en ég hafði alla ferðina bara treyst á Elfar og hann ratvísi og ég get allaveganna stolt sagt að við komumst að lokum á réttan stað þrátt fyrir að ég hafi kannski ekki fundið stystu leiðina :)

Í Milan gerðum við nú ekki mikið merkilegt, kíktum aðeins í búðir enda ekki búin að eyða nema svona rúmlega 100 þúsund kalli í Köben í föt :) Við vorum bara í einn dag þar.
Svo tók ferðalagið heim við en við vorum aðeins í 20 tíma á leiðnni heim :/ Vá hvað það var þreytandi en við flugum fyrst til London og þar voru alveg 9 tímar í flugið heim. Þar var bara rigning og maður er svo lengi á leiðinni niður í bæ, auk þess er það dýrt þannig að við vorum bara á flugvellinum.

Núna er ég svo bara í vinnunni að undirbúa mig undir gríðalega spennandi vinnuhelgi, 12 tíma vaktir alla helgina og á mánudaginn. Æji það er svo sem allt í góðu, ég er hvorki spennt fyrir því að djamma þessa dagana né líkamlega fær í það. Eftir alltof langt blogg á launum þá held ég að ég verði að fara að gera eitthvað að viti hérna.

mánudagur, júlí 18, 2005

Jaeja aetli min verdi ekki adeins ad lata i ser heyra ur utlandinu. Eg sit nuna treytt og sveitt a internetkaffi fyrir utan hotelid mitt i Rom. Vid komum hingad i gaer eftir ad hafa verslad i Koben og dansad eins og vitleysingar i tvaer og halfa viku. Bara gaman en aetli eg verdi ekki ad segja fra tvi sidar, eg veit bara ekkert hvar i oskopunum eg aetti ad byrja. Nuna erum vid buin ad vera ad ganga i allan dag og skoda orugglega svona 10 merkilega sight seeing stadi, m.a. collosium, Roman forum og Pantheon, tad var gridalega gaman en einnig mjog sveitt, eg er hondla hitann ekkert alltof vel tegar tad er engin sundlaug a stadnum. Svo er lika mjog skemmtilegt lif i borginni fram eftir ollu og hotelid okkar er einmitt a svo godum stad ad vid getum upplifad tad allt saman. Vid komum t.d. kl 20 i gaer og vorum i baenum til svona 24 og ta var sko ennta fullt af folki, ta var folk meira ad segja ennta ad borda kvoldmat a veitingastodum borgarinnar. Jaeja ted er allt of erfitt ad skrifa a tessu lyklabordi, eg get ekki einu sinni gert broskall, eg verd bara ad standa mig i blogginu tegar eg kem heim. En tangad til ta, skemmtid ykkur vel i kuldanum!!

þriðjudagur, júní 28, 2005

Takk takk takk takk allir fyrir æðislegan dag - hiklaust sá besti sem ég hef upplifað. Takk líka fyrir allar gjafirnar, það var nú alveg óþarfi að tæma veskið alveg eins og flestir virðast hafa gert. Núna get ég sko aldeilis haldið matarboð með nýja fína stellið mitt og glösin. Svo fengum við líka helling af skrautmunum og tækjum - frystikistan og hrærivélin eiga sko aldeilis eftir að koma að góðum notum - nú er eins gott að mín fari að vera dugleg að elda og baka, ég hef enga afsökun lengur. Svo fengum við meira í safnið af húsgögnum en pabbi hans Elfars smíðaði handa okkur þvílíkt flottan kistil - það var víst unnið langt fram á nætur við að reyna að klára hann. Jæja víst að ég hef loksins fengið smá tíma til þess að blogga (er í vinnunni :)) þá ætla ég að reyna að rekja aðeins daginn sjálfan og kannski aðeins dagana fyrir því ég vil nú ekki gleyma neinu sem gerðist á þessum frábæra degi. Ég er nefnilega að fara út á morgun og verð í alveg fjórar vikur þ.a. ég á nú ekki eftir að blogga mikið á næstunni, það er ekki einu sinni víst að ég eigi eftir að blogga neitt - það verður allaveganna ekki ofarlega á forgangsröðinni :) Við erum sem sagt að fara til danmerkur fyrst - en þar ætlum við að stoppa þrjá daga hjá pabba í Köben (ásamt 4 öðrum í dansinum), svo förum við til Ærö þar sem við verðum í tvær vikur á svona danshátið þar sem við bæði lærum ýmislegt, kennum örugglega eitthvað og svo böll (fyrir utan annars konar skemmtun). Við verðum 13 krakkar frá Íslandi og einhverjir fullorðnir en allt í allt verða nokkur hundruð manns þarna - ég er ekki alveg viss á tölunni. Síðan förum við aftur til Köben og gistum þar bara eina nótt áður en við fljúgum til Ítalíu. Við fljúgum til Rómar og stoppum þar eitthvað, þaðan förum við til Flórens og Piza (?), svo liggur leiðin til feneyja (samt bara í dagsferð) og svo endum við í Milan. Þaðan fljúgum við til london en þar ætlum við ekkert að stoppa. Snill :)
Jæja aftur að brúðkaupinu:

Miðvikurdagur og fimmtudagur:
Alls konar reddingar í gangi - ég brunaði stanslaust milli búða báða dagana og gerði ýmislegt á síðustu stundu. T.d. keypti ég ekki brúðhjónaglösin fyrr en seinnipart fimmtudags :)Eftirminnilega var líka ferðin mín í bónus en þar sem ég hafði engan til að hjálpa mér þá þurfti að fara tvær ferðir að kassanum að borga vegna þess að ég kom ekki öllu dótinu í eina kerru enda keypti mín m.a. 7 kippur af gosi og tvær af cider - geri aðrir betur :)

Föstudagur:
Við vöknuðum snemma til að fara að skreyta salinn ásamt mínum yndislegu vinkonum og systur minni og Elfars. Það tók nú reyndar ekki langan tíma því mínar yndislegu vinkonur og ég (bara smá) voru búnar að brjóta saman allar servíetturnar og búa til servíettuhringi utan um þær. Þær, ásamt öllu því skrauti sem ég og Mæja vorum búnar að kaupa í sameiningu og skreytingarhæfileikum Mæju gerðu salinn bara þann flottasta sem ég hef nokkru sinni séð - ekki það að ég hafi mikla reynslu en samt VÁ! Ég var samt heillengi í salnum m.a. vegna þess að þegar allir skreytingarsnillingarnir voru farnir var eftir að skreyta brúðhjónaglösin þ.a. ég reyndi að redda því - reyndi er rétta orðið því ég hef nú alveg séð flottari glös. Restin af deginum fór í allskonar reddingar (sumar á síðustu stundu, t.d. pantaði ég skrautið á bílinn fyrst þá, konan sem sá um salinn gerði einmitt mikið grín af því hvað ég var skipulögð - já eða ekki :)), æfingu í kirkjunni og svo þrif á íbúðinni. Um kvöldið fór ég svo til mömmu því ég ætlaði að gista hjá henni en Elfar heima. Ég sofnaði vært í fallegu herbergi en mamma var búin að kaupa blóm og hengja kjólinn á fataskápinn þ.a. þetta var sú sýn sem ég sofnaði við :)

Laugardagur:
Ég vaknaði óvart kl 7 eftir að hafa sofið rosalega laust alla nóttina. Það var þó ekki stressið sem vakti mig heldur spenningurinn, ég bara gat ekki beðið :) Ég var vakandi í einn og hálfan tíma en náði svo aðeins að sofna aftur í eins og klukkutími áður en ég þurfti að vakna til að fara í hárgreiðslu og svona. Á sama tíma var Elfar heima að horfa á lost - hann gat ekki sofið heldur þ.a. hann byrjaði daginn á að horfa á þrjá þætti af lost á meðan vinkonur mínar að norðan voru að skreyta svefnherbergið :) Eftir hárgreiðsluna fór ég aftur heim til mömmu en þar var allt á fullu, mamma og Sölvi að baka, amma og afi að taka sig til, Ingólfur gerði allt sem hann var beðinn um, Mæja var að mála allar stelpurnar (þ.e. mig, mömmu og ömmu) ásamt því að reyna að taka sjálfa sig til. Þetta var samt alveg rosalega skemmtileg stemmning en sem betur fer voru allir farnir nema Mæja og Ingólfur þegar ég fór að koma mér í kjólinn. Við vorum ágætlega tímanlega í því en bara vegna þess að við flýttum okkur mjög mikið. Sem dæmi um það má nefna að ég var næstum því búin að gleyma undirpilsinu heima en án þess er kjóllinn frekar ómerkilegur og auðvitað alltof síður á mig. Mæja mundi bara allt í einu eftir því að við höfðum gleymt sjalinu sem ég hafði utan um mig milli staða heima og sá þá undirpilsið á rúminu - við vorum lengi í sjokki yfir því að við hefðum næstum því gleymt því.
Við vorum komin í kirkjuna svona 10 mínútur í 3 og þá fór ég inn í svona herbergi með spegli þar sem ég gat undirbúið mig. Ég var aldrei stressuð á þessu tímabili, ég hlakkaði bara til á meðan ég stóð og dáðist af kjólnum mínum og vendinum sem varð alveg fullkominn jafnvel þótt ég lýsti því bara fyrir konunni í búðinni hvernig ég vildi hafa hann. Pabbi var aðeins seinn þ.a. við gengum ekki inn gólfið fyrr en fimm yfir. Allan þennan tíma hafði ég bara áhyggjur af Elfari því hann var búin að ítreka það svo oft við mig að vera á réttum tíma því annars myndi hann pottþétt fara að efast um að ég myndi koma :) Ég lofaði honum nú samt bara að ég myndi mæta, treysti mér ekki til að lofa hinu því maður veit nú aldrei hvað getur komið upp á. Ég frétti reyndar síðar að hann hefði alveg verið rólegur því hann sá Ingólf og þar sem hann vissi að hann hefði skutlað mér þá vissi hann að ég væri komin. Athöfnin í kirkjunni var alveg æðisleg, ég var mjög afslöppuð og um leið og ég var komin upp til Elfars þá slakaði hann líka á. Presturinn og söngurinn var frábær, þetta var allt svo persónulegt. Hjörtur Magni, Miriam og Óskar voru þarna líka af því að þau vildu það, þau þökkuðu mér öll fyrir að leyfa þeim að taka þátt í þessu - já ég er svo góð :) Þetta finnst mér alveg lýsandi fyrir stemmninguna - ég bað þau um að gera mér greiða og þau þakka mér - það voru bara allir svo ánægðir með að vera þarna. Svo var athöfnin sjálf líka á léttu nótunum, ég skemmti mér bara mjög vel og þetta varð aldrei stíft. Tilfinningarnar voru líka á miklu flugi, ekki bara hjá okkur því það voru nú ansi margir snöktandi í salnum - svona á þetta að vera :)
Eftir athöfnina (og eftir að hafa verið drekkt í hrísgrjónum) fórum við í myndatökuna. Þetta voru nú aðallega innimyndir enda mikil rigning úti. Undir lokin fórum við reyndar út með regnhlíf og Stebbi smellti af okkur nokkrum myndum og þá var sko demba. Mæja hjálpaði einnig mikið til í myndatökinni og sá til þess að við litum vel út - svo er bara spurning hvernig útkoman verður :/
Eina svona virkilega vandræðalega mómentið var þegar við komum fyrst í veisluna. Þá biðu allir eftir okkur með glös og planið var að skála en eitthver misskilningur var milli mín og veislustjórans þ.a. enginn sagði neitt. Svo tók við mikið kysserí, það tekur nú bara á að kyssa 150 manns :) Mér fannst þetta eiginlega eini gallinn við hafa svona marga - ég fékk eiginlega engan tíma með hverjum og einum og suma sá bara varla en það samt æðislegt að hafa svona marga sem manni þykir vænt um á einum stað. Það komu líka allir sem skipta mig mestu máli og það finnst mér æðislegt. Anyways þá tók veislan við og hún heppnaðist alveg rosalega vel að mínu mati. Elli veislustjóri stóð sig alveg frábærlega og atriðin voru svo skemmtileg og ekki er verra hvað þau komu oft mikið á óvart. Það töluðu nú ekki margir en það kom mér svo sem ekkert á óvart þar sem það er nú ekki mikið af ræðuglöðu fólki í minni ætt eða Elfars og það sama gildir um vinahópinn. Addi bróðir, sá feimnasti af þeim öllum, hélt þó ræðu mér til mikillar undrunar og þessi líka snilldar ræða - hún hitti sko beint í mark :) Fyndin, skemmileg skot en líka svo falleg - í allan þann tíma sem mér hefur fundist Addi ekki vera mikið inn í hlutunum þá var hann með þetta allt á hreinu. Fyndnast fannst mér þó commentið hans um Elfar - best er að segja honum hvað hann á að gera en ekki hvernig hann á að gera það - vá hvað þetta er rétt hjá honum :) Mér finnst annars bara fínt að atriðin skyldu vera meira í svona videoformi. Brilliant video frá steggjuninni og æsku minni. Okkur langaði nú samt oft að hverfa ofan í stólinn. Mig langaði það sérstaklega þegar það var verið að sýna frá dansinum - úff. Söngurinn var allt í góðu af því að hann var í gríni gerður á þessum tíma (átti að vera óperusöngur :) og stelpurnar sungu líka en það var auðvitað klippt út) en ég er samt ekki viss um að allir gestirnir hafi áttað sig á því - það hlítur samt eiginlega að vera en eftir að hafa séð frá idolinu þá veit maður það svo sem aldrei hvað maður á að halda:)
Jæja ég hef eiginlega ekki tíma til að fara svona hægt yfir sögu. Eftir veisluna var svo dansað auðvitað. Fyrst brúðarvaldinn, svo show frá jógúrt, síðan allir gestirnir dregnir út á gólfið í boing og að lokum var frjáls dans en þá spilaði þessi líka snilldar hljómsveit. Ég var búin að biðja Ingólf og Svenna um þetta fyrir löngu en kvöldið fyrir veisluna þá bættist Óli við á trommurnar - þeir voru bara hreint út sagt æðislegur. Ég var í þvílíku stuði og ekki á því að fara heim. Það fóru nú flestir heim um leið og dansinn byrjaði - týpískir Íslendingar geta náttúrulega ekki dansað án áfengis. Fyrst fannst mér það pínu leiðinlegt en svo í lagi enda voru nú líka allir mínir bestu vinir (ungir og gamlir), foreldrar og systkini á staðnum þangað til ég fór (eða allt að því). Ég skemmti mér mjög vel og dró náttúrulega alla strákana (og mennina) sem eftir voru með mér út á gólfið. Ég kastaði vendinum bara alveg í endann og þá voru nú ekki nema svona 10 stelpur eftir. Það var samt alveg pínu stelpu fight. Erna sló fyrst í hann, svo Ása og að lokum hafnaði vöndurinn í höndunum á henni Þurí en hún gerði samt enga tilraun til að ná honum. Stebbi var nú ekki alveg að fíla það að 16 ára frænka hans skyldi hafa gripið vöndinn og það gerði þetta nú bara ennþá fyndnara :)
Kvöldið versnaði nú heldur ekki við það að koma heim. Við byrjuðum reyndar á því að láta nágranna okkar fyrir ofan nánast fá hjartaáfall en hann var ákkúrat að koma heim til sín þegar Elfar var að gera sig tilbúinn til að bera mig yfir þröskuldinn - sá var hissa :) Þegar inn var komið þá tóku m.a. á móti okkur blóm, sælgæti og jarðaber með súkkulaði á. Þegar betur var að gáð var líka búið að setja svona slakandi baðkúlur inn á bað. Þ.a. við Elfar byrjuðum á því að leggjast í bað, drukkum sprite í fínu brúðhjónaglösunum okkar og mötuðum hvort annað á jarðaberjum. Þetta var algjör draumur, sérstaklega þar sem ég var líka orðin ansi svöng enda fékk ég nú ekki mikinn tíma til að borða í veislunni. Já svo ætla ég nú ekki að fara út í nákvæmari lýsingar nema kannski að við opnuðum morgungjafirnar strax um kvöldið.Elfar klikkar ekki frekar en venjulega :)

Sunnudagur:
Við opnuð fullt af gjöfum (og þá meina ég fullt - þetta tók engan smá tíma) og tókum á móti nokkrum gestum sem voru að kveðja. Ég fór samt aldrei út náttfötunum :)

Takk allir fyrir allt - veislan var ekki bara persónuleg heldur tókst hún líka bara það vel og var það flott að það mætti halda að fagmenn hefðu séð um þetta allt. Lítið skipulag og góðir vinir og ættingjar er greinilega bara málið :)

þriðjudagur, júní 21, 2005

Það var verið að hringja í mig frá Tékk kristal og segja að það sé löngu búið að kaupa allt þar á brúðhjónalistanum og fólk var víst orðið eitthvað pirrað á þessu. Fólk var víst orðið eitthvað pirrað á þessu þ.a. ég hringdi í Debenhams og tékkaði á þessu, þar er sko aðal listinn, eina ástæðan fyrir því að ég setti Tékk kristal á listann er sú að mig langaði í glös þar sem ég er búin að vera að horfa síðan ég var lítil. Það er nóg eftir í Debenhams þ.a. ef þið eruð og þekkið eitthvað af þessu fólki þá megið þið endilega láta vita af því. Síminn er bara óstöðvandi þessa dagana hjá minni út af einhverju svona :)

mánudagur, júní 20, 2005

5 dagar til stefnu - vá hvað tíminn líður hratt. Ég fór í lokamátunina á brúðarkjólnum í dag - ég bara elska þennan kjól - alltaf þegar ég er að reyna að útskýra fyrir fólki hvernig hann er þá finnst mér hann virka svo ómerkilegur en svo þegar ég máta hann aftur þá verð ég ástfangin á ný :) Ég keypti líka skart í dag en þetta ætlar ekkert að ganga með skóna - ég labbaði laugarveginn í dag, er búin að fara í smáralind og kringluna og ég er bara búin að gefast upp. Ég mátaði eina skó á leigunni í dag sem passa á mig (en það hefur líka verið mikið vandamál) og ég hugsa að ég taki þá bara. Þeir eru fínir við kjólinn, þeir sjást náttúrulega ekki mikið en ég veit bara að ég á aldrei eftir að nota þá aftur eftir brúðkaupið. En þeir eru allaveganna fínir, til í mínu númeri, þægilegir og þeir ódýrustu sem voru til á leigunni þ.a. ég skelli mér bara á þá.
Svo er ég að fara í prufugreiðslu á morgun hjá einhverri gellu sem ég veit ekkert hver er. Hún var búin að segja mér að skoða brúðarblöð og svona og reyna að finna mér einhverja greiðslu sem ég gæti sýnt henni. Ég fann enga eins og ég vil hafa þ.a. ég ætla bara að láta reyna á það að útskýra fyrir henni hvað ég vil þ.e.a.s. ef ég finn ekkert í blöðunum sem hún er með. Ég er bara farin að halda að ég sé rosalega erfið- það virðist allaveganna allt vera vesen hjá mér - ég er bara hissa hvernig konan á leigunni þolir mig - nei reyndar ekki svo miðað við viðskiptavininn sem kom á eftir mér í dag, ég bara forðaði mér út - vá!! Jæja vinnan kallar

This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Weblog Commenting by HaloScan.com